Um okkur
Opinn borgarafundur er breiðfylking fólks sem á það sameiginlegt að vera umhugað um lýðræðislegt stjórnarfar á Íslandi. Félagsskapurinn er ekki flokkspólítískur og er opinn öllum sem áhuga hafa.
Félagsskapurinn hefur haldið 4 opna borgarafundi þar sem almenningi hefur gefist kostur á að tjá sig eða spyrja ráðamenn beinna spurninga þar sem stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn hafa setið fyrir svörum.
Til hvers?
Til að hinn almenni borgari geti komið hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri á óvissutímum.
Í gegnum tíðina hefur almennum borgurum landsins hvergi gefist kostur á að tjá sig eða spyrja ráðamenn beinna spurninga.
Stjórnmálamönnum, seðlabankastjórum, bankastjórum og fleirum verður boðið að mæta til að svara spurningum Íslendinga, milliliðalaust.
Tilgangurinn er að leita spurninga og svara um hvað framtíðin ber í skauti sér og gera kröfu um að almenningur fái skýr skilaboð og sé ekki hafður útundan í umræðunni.
Netfang: borgarafundur@borgarafundur.org
Forsvarsmenn
Gunnar Sigurðsson leikstjóri (gus@mmedia.is - simi/telephone: +354 897 7694)
Davíð A. Stefánsson bókmenntafræðingur (david@ljod.is - simi/telephone: +354 864 7200)

Við erum á YouTube
Skrá mig á póstlista
Spjallborð