Vinsamlegast skrifið í gestabókina.

ATH, nafnlausum færslum verður eytt.


Warning: fopen(/home/content/N/e/d/Neddi/html/borgarafundur/wp-content/plugins/dmsguestbook/language/isl.txt) [function.fopen]: failed to open stream: No such file or directory in /home/content/N/e/d/Neddi/html/borgarafundur/wp-content/plugins/dmsguestbook/dmsguestbook.php on line 595

Warning: fclose(): supplied argument is not a valid stream resource in /home/content/N/e/d/Neddi/html/borgarafundur/wp-content/plugins/dmsguestbook/dmsguestbook.php on line 603

  *
  *
 
  *
*

captcha

(17)
1 2
>
(17) Borgari
Tue, 17 February 2009 07:17:50 -0700
email

Mætti ég koma með tillögu að næsta borgarafundi að þar verði rætt um Alþjóðagjaldeyrissjóðinni, skilmálana sem eru settir fyrir láninu.
Þar gætu mætt fulltrúar stjórnarmálaflokka, ríkisstjórnarinnar og fjölmiðlar.
Mér þætti áhugavert að heyra svör fjölmiðla við því hvers vegna ekki hefur komið ein frétt um það hvað AGS hefur gert öðrum löndum sem hafa tekið lán hjá honum.
Og svo auðvitað frá stjórnvöldum um það hverjir skilmálarnir eru á láninu.
mæli með grein um AGS á www.this.is/nei
(16) Helena
Sat, 17 January 2009 07:07:26 -0700
email

Takk fyrir frábæra fundi. Allir sem að þeim standa eiga hrós skilið.
Hvernig væri að fá fjölmiðlamenn til þess að sitja fyrir svörum á næsta fundi. Þeir geta kannski útskýrt fyrir okkur hvernig fréttaflutningur þeirra vikrar. Afhverju eru þeir að mála upp svatra mynd af mótmælendum, við sem erum fólkið í landinum. Og geta þeir svarað því hvort þeim sé stjórnar af "æðri máttar völdum" (eins og sýndi sig í málinu með Reyni Traustason og Jón Bjarka).

Vildi bara koma þessari ábendingu áleiðs. Ég þakka annars fyrir frábært framtak.

Bestu kveðjur,

Helena
(15) Hallur Kristvinsson
Wed, 10 December 2008 10:57:54 -0700
email

Frábært framtak, heimasíða til fyrirmyndar. Mætti of seint í fyrradag, 8. des. og bíð spenntur eftir að heyra hvað Gylfi sagði í upphafi.
--- Í dag eru tvö lið á Íslandi, við og þeir, þ.e.a.s. líðurinn og peningarnir já og fullt af áheyrendum. Flestir fulltrúar lífeyrissjóða og verkalýðshreyfingar virðast vera í peningaliðinu!!!! Stöndum saman í að efla líðinn, liðið okkar.
(14) Salvör
Thu, 4 December 2008 08:33:04 -0700
url  email

Vil hrósa ykkur fyrir mjög flotta uppsetningu á vefsíðunni, gaman að sjá wordpress notað á svona flottan hátt fyrir vefmiðill. Ég nota þetta sem sýnidæmi fyrir hvernig open source hugbúnaður nýtist í grasrótarstarfi.
(13) Ásta Steingerður Geirsdóttir
Fri, 28 November 2008 08:40:17 -0700
email

Veruleikafyrring og skrumskæling á hugtakinu "lýðræði" Því miður einkennir þetta ráðamenn þjóðarinnar. Við verðum því að standa þétt saman og knýja fram breytingu á stjórnarfari landsins. Það verður einfaldlega eitthvað að fara að gerast.
(12) Solveig
Fri, 28 November 2008 08:39:36 -0700
email

Gaman að sjá hvernig þetta er að blómstra og dafna, á örugglega eftir að bera ávöxt. Raddir fólks farnar að heyrast, loksins, án hræðslu. Verst hvað það var samt dýrkeypt. Bestu þakkir fyrir fábært framtak. Sjáumst á NASA.
(11) Steinar Immanúel Sörensson
Fri, 28 November 2008 08:38:45 -0700
url  email

Þetta er framúrskarandi vinna sem þið eruð að vinna hér og gleður mig að einhverjir hafi þorað að leggja af stað og vera leiðandi í baráttu allrar þjóðarinnar fyrir réttlæti og lýðræði.

Ég á mér þann draum að sjá Ísland sem land fólksins, land þar sem manngildi og auðlegð lands eru höfð í fyrirrúmi, land sem er laust við græðgi fjármála aflanna og tilbúið að hjálpa jafnvel sínum minnsta bróður að blómstra.
(10) Hildur
Fri, 28 November 2008 08:37:22 -0700
email

Við höfum tíma til þess að setja saman borgaralegahreyfingu fyrir næstu kosningar.
koma svo!
látum þessa rödd okkar hljóma á Alþingi
(9) Sindri Ká
Fri, 28 November 2008 08:36:45 -0700
email

Frábært framtak. Ég er sérstaklega ánægður með not á Youtube sem og netinu almennt. Þetta er framtíðin. Sjáið bara hvað gerðist og er að gerast í tengslum við forsetakosningar í USA sem nú eru liðnar.

kveðjur að norðan
(8) Guðmundur
Fri, 28 November 2008 08:35:57 -0700
email

Ég mæti! Spurning hvort að Skrílþingismennirnir gerið það?
>