Fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17:15 - 19:45 verður annar fundur af þremur undir leiðsögn Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings. Fundirnir eru haldnir í Borgartúni3.

Í þessum fundum heldur Gunnar erindi og stýrir umræðum um hvernig við getum greint og nýtt styrkleika okkar og góð lífsgildi í gegnum kreppuástandið. Hugað er að góðum lífsgildum, mikilvægi hjálplegs hugarfars og þess að fólk tali saman, tjái sig, læri af öðrum og leiti úrræða.

Frítt er inn og allir velkomnir.

Sjá nánari upplýsingar.