Archive for February, 2009

Að nýta styrkleika sína og góð lífsgildi - fundur 2/3

Fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17:15 - 19:45 verður annar fundur af þremur undir leiðsögn Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings. Fundirnir eru haldnir í Borgartúni3.

Í þessum fundum heldur Gunnar erindi og stýrir umræðum um hvernig við getum greint og nýtt styrkleika okkar og góð lífsgildi í gegnum kreppuástandið. Hugað er að góðum lífsgildum, mikilvægi hjálplegs hugarfars og þess að fólk tali saman, tjái sig, læri af öðrum og leiti úrræða.

Frítt er inn og allir velkomnir.

Sjá nánari upplýsingar.

Opinn borgarafundur #10

Í Háskólabíó, mánudaginn 16. febrúar kl 20-22.

Fundarefni

Staðan - Stefnan - Framtíðin


Frummælendur

  • Haraldur L. Haraldsson - hagfræðingur
  • Andrés Magnússon - geðlæknir
  • Aðalheiður Ámundadóttir - laganemi

Auk þeirra hefur ríkisstjórn Íslands og formönnum þeirra flokka sem ekki eiga aðild að ríkisstjórn verið boðin þátttaka í pallborðsumræðunum.

Öllum þingmönnum hefur einnig verið sérstaklega boðið.


Fyrirkomulag

Fundarform verður með sama sniði og áður, þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og fundargestir úr sal fá að tjá sig eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga. Hver aðili hefur tvær mínútur til að tjá sig svo gott er að vera vel undirbúinn.

Spyrjum, hlustum og fræðumst.

Sýnum samstöðu og borgaralega virkni og fjölmennum á fundinn.

Fimmtudaginn 19. febrúar kl. 17:15 - 18:45 verður haldinn fundur í Borgartúni 3 undir leiðsögn Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings.

Gunnar heldur erindi og stýrir umræðum um hvernig við getum greint og nýtt styrkleika okkar og góð lífsgildi í gegnum kreppuástandið. Hugað er að góðum lífsgildum, mikilvægi hjálplegs hugarfars og þess að fólk tali saman, tjái sig, læri af öðrum og leiti úrræða.

Frítt er inn og allir velkomnir.

Sjá nánari upplýsingar.

Opið hús og undirbúningsfundur

Kl 16:00 í dag laugardaginn 7. febrúar verðum við með opið hús í Borgartúni 3
Boðið verður upp á kaffi, súkkulaði og eitthvað gómsætt með því.

Mánudaginn 7. febrúar kl: 20:00-22:00 verður undirbúningsfundur fyrir næsta opna borgarafund.
Hvetjum alla til að mæta og taka þátt í undirbúningnum en stefnan er að bjóða nýju ríkisstjórninni í Háskólabíó.

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Borgarafundur á Akureyri

Borgarafundur.org vill vekja athygli á borgarafund á Akureyri næsta sunnudag. Fundurinn er haldinn í samvinnu við undirbúningsnefnd borgarafundanna í Reykjavík.


Yfirskrift fundarins er: Landráð af „gáleysi”


Staðsetning: Ketilhúsinu

Tími: sunnudaginn 8. febrúar. kl 15:00


Frummælendur:

  • Sigurjón Þórðarson, heilbrigðisfulltrúi á Sauðárkróki
  • Margrét Heinreksdóttir, lögfræðingur
  • Andrés Magnússon, læknir
  • Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur



Í pallborði:

Lilja Skaftadóttir, fulltrúi Landráðshópsins, Atli Gíslason, lögfræðingur og þingmaður VG og feiri

Ölllum þingmönnum kjördæmisins hefur verið sent fundarboð.


Fundarstjóri: Edward Huijbens