Laugardaginn 27. des kl. 16.00 verður opið hús í miðstöðinni okkar að Borgartúni 3, kaffi og með (ef allar kökurnar verða ekki búnar eftir aðventuna )
Mánudaginn 29. des kl. 20.00 verður undirbúnings- og umræðufundur um komandi borgarafundi
Laugardaginn 3.jan 2009 kl.16.00 verður opið hús í Borgartúni 3
Mánudaginn 5. jan kl. 20.00 verður undirbúnings- og umræðufundur
Við stefnum að stórum fundi í Háskólabíó mánudaginn 12 jan kl. 20.00.
Einnig er til athugunar að hafa minni fund t.d. í vikuni 5-9 jan ræðum það betur í næsta hitting
Carlos Ferrer sendi okkur þessa hugmynd
Atvinnuleysistryggingarsjóður hefur 15 milljarða króna eigin fjár. Það dugar fyrir 6% atvinnuleysi í eitt ár. Hver prósenta atvinnulausra kostar 3 milljarða.
.
Mín tillaga er sú að ríkið taki lán eða setji af lánsfé a.m.k. 40 milljarða eða 10% af IMF láninu í þennan sjóð. Ríkið tryggði 6 - 10% atvinnulausra lágmarkstekjur í a.m.k. 3 ár. Síðan leggi ríkið í samfélagslega ábatasamar og mannaflsfrekar fjárfestingar s.s. uppbyggingu almenningssamgangna, auknar samskiptaleiðir, fjölmiðlun, nýjar menntunarleiðir og frumkvöðlaverkefni. Fólk sem missir atvinnu nú, er líkast til vel menntað og ætti því að fá störf við hæfi við þessa uppbyggingastarfsemi.
.
Eftir þrjú ár ætti annað hvort kreppan að vera að grynnka eða þessar aðgerðir farnar að skila sér hægt og rólega í samfélagi sem er færara um að bjarga sér en það er nú.
.
Hugmyndin er tekin að láni frá B. Obama, verðandi forseta BNA sem vill á svipaðan hátt koma bandarísku samfélagi á flot. Nema hvað þar er áhersla á byggingar, breiðband og vegi, sem er í tiltölulega góðum málum hér.
.
Carlos Ferrer
Myndskeið af erindum frummælenda á síðasta borgarafundi eru komin hingað á vefinn.
Frummælendur voru:
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
Ásta Rut Jónasdóttir, húsmóðir
Vésteinn Gauti Hauksson, markaðsstjóri
Erindi frummælenda frá upphafi er að finna undir liðnum Frummælendur hér að ofan. Öll myndskeið er einnig hægt að skoða beint frá YouTube.
Stóri salur Háskólabíós var nær fullsetinn á fimmta opna borgarafundinum í kvöld. Allir helstu forkólfar verkalýðshreyfinga og lífeyrissjóða sátu fyrir svörum, en meðal þeirra voru Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands, Gunnar Páll Pálsson formaður VR, Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins, Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Eiríkur Jónsson formaður KÍ, Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóðanna. Einnig mætti Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, var einnig frummælandi á fundinum og ræddi aðgerðir til aðstoðar heimilum í fjárhagsvandræðum.
Annar frummælandi var Ásta Rut Jónasdóttir, húsmóðir. Hún gagnrýndi verðtrygginguna harðlega sem og aðgerðarleysi stjórnvalda og sinnuleysi verkalýðshreyfingarinnar.
Síðasti frummælandinn var Vésteinn Gauti Hauksson, markaðsstjóri sem lýsti vanda heimilanna á mjög persónulegan hátt en hann hefur tekið þá ákvörðun að hætta að borga af íbúðalánunum sínum þar sem hann sjái enga aðra leið.
Mikill hiti var í fundargestum út í sal. Margir vildu bera fram spurningar og líkt og áður komust færri að en vildu. Spurningar úr sal snerust að mestu um verðtrygginguna ásamt ítökum atvinnurekenda í lífeyrissjóðum og launamál forystumanna verkalýðshreyfinganna. Einn fundargesta stakk upp á að efnt yrði til allsherjarverkfalls til að knýja ríkisstjórnina frá völdum. Salurin tók vel í þá hugmynd en forystumenn verkalýðshreyfingarinnar sögðu að slíkar aðgerðir væru ólöglegar.
Erindi frummælenda, ljósmyndir og myndskeið frá fundinum verða birt hér á vefnum innan tíðar.
Ingvaldur sendi okkur hugmyndir um opnara lýðræði
Komið sæl og þakka fyrir málefnalega og góða fundi
Ingibjörg segir fundamenn tala hvern fyrir sig og Geir segir að þetta sé ekki þjóðarpúls en líklega eru 9 á bakvið hvern sem mætir á slíkan fund með sömu skoðun
Skýr skilaboð væri td. sms kosning og jafnfram gæti það verið fjáröflun fyrir fundina, td 30 kall hvert sms
Það sem mest hvílir á fólki held ég að sé, seðlabanki, ráð og stjórn, FME æðstu menn og stjórn, viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra í burt, nýtt fólk í bankana þannig að þar sé ekki verið að díla með eignir eins og ólöglegan varning.
Einfalt kerfi að kjósa um slíkt með sms, enn áhrifameira væri að setja upp heimasíðu með kosningakerfi líkt og þeir í Sviss gera, held að tölvukunnáttumenn yrðu ekki lengi að setja upp nokkuð trygga síðu
Þá fengju Geir og Solla beint í æð hvað fólk vill
Kv. Ingvaldur
Verður haldinn í Háskólabíó mánudaginn 8. desember kl. 20:00 - 22:00.
Forysta verkalýðshreyfinga, fulltrúar lífeyrissjóða, félagsmála- og viðskiptaráðherrar hafa fengið formlegt fundarboð til að koma og svara spurningum almennings milliliðalaust.
Tilgangur fundarins er að gefa hinum almenna borgara kost á að spyrja ráðamenn beinna spurninga og leyfa ráðamönnum að heyra beint frá þeim aðilum sem þeir þjóna.
Fundarstjóri: Gunnar Sigurðsson, leikstjóri
Frummælendur:
Ásta Rut Jónasdóttir, húsmóðir
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands
Vésteinn Gauti Hauksson markaðsstjóri
Form fundar:
Þrír frummælendur hefja umræðuna (5 mínútur hver). Þegar þeir hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og hver sem vill fær tvær mínútur til að tjá sig úr sal eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga. Fundarstjórn og tímavarsla verður sem fyrr tekin föstum tökum í nafni lýðræðislegrar umræðu.
Hvetjum fundargesti til að mæta með tilbúnar og gagnorðar spurningar.