Archive for 'Ræður'

Fróðlegur og áhrifaríkur fundur

Aðstandendur Opins borgarafundar þakkar fyrir vel heppnaðan fund í Háskólabíó í gær. Stóri salurinn var fullur og hátt í 300 manns sátu í andyrinu og fylgdust með fundinum af flatskjám. Erindi frummælenda voru mjög áhugaverð og vöktu mikla lukku fundargesta.

Að þessu sinni fengu frummælendur lengri tíma en áður, þar sem að erindin voru að þessu sinni flest til að uppfræða, en minni tími var þá fyrir spurningar og svör.

Fundurinn hefur fengið mikla athygli í fjölmiðlum og má m.a. nefna að fulltrúar forsætisráðuneytisins og viðskiptaráðuneytisins munu hitta Robert Wade, einn frummælenda, á morgun.

Erindi frummælenda eru komin á vefinn og er að finna undir liðnum Frummælendur.

Myndbandsupptökur munu koma á vefinn eins fljótt og auðið er.

Að vanda festi Gunnar Gunnarsson fundinn á filmu og er hægt að skoðamyndirnar undir liðnum Myndasafn.

_MG_5172.jpg_MG_5541.jpg_MG_5253.jpg_MG_5449.jpg

Ný myndskeið komin á vefinn og YouTube

Myndskeið af erindum frummælenda á síðasta borgarafundi eru komin hingað á vefinn.
Frummælendur voru:

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ

Ásta Rut Jónasdóttir, húsmóðir

Vésteinn Gauti Hauksson, markaðsstjóri

Erindi frummælenda frá upphafi er að finna undir liðnum Frummælendur hér að ofan. Öll myndskeið er einnig hægt að skoða beint frá YouTube.

Myndskeið frá borgarafundinum á NASA

Nú eru myndskeið með erindum frummælenda síðasta borgarafundar komin á vefinn.

Hægt er að horfa á þau á YouTube svæðinu okkar: www.youtube.com/borgarafundur.

Erindi flestra frummælenda er hægt að lesa hér á vefnum undir tenglinum Greinar og skjöl.

Borgarafundurinn á Rás 1

_MG_2965.jpg3039807789_6d1a38c8f4.jpg3040643012_5f864cdb1d.jpg_MG_3159.jpg

Þeir sem misstu af borgarafundinum á NASA síðastliðinn mánudag geta nú hlustað á hann af netinu.

Fundinum var útvarpað í þættinum Í heyrenda hljóði sem er í loftinu á Rás 1 kl 9:00 á þriðjudagskvöldum.

Hjóðupptökuna að finna hér á vef ruv.is: Í heyrenda hljóði - Borgarafundur á NASA

Borgarafundur á NASA - erindi frummælenda

Erindin sem Eggert Briem, Irma Erlingsdóttir og Davíð A. Stefánsson fluttu á borgarafundinum í gær eru nú komin hér á vefinn:

 

borgarafundur_iii_eggert.jpg  Íslands óreiðumenn - Eggert Briem 

3039834867_c52de94dcd.jpg  Átökin um veruleikann - Irma Erlingsdóttir

borgarafundur_iii_david.jpg  Mér er illt - Davíð A. Stefánsson

Kæri Björgólfur

Halla Gunnarsdóttir blaðamaður flutti eftirminnilegt ávarp á opnum borgarafundi í Iðnó 8. nóvember. Ávarpið er hægt að nálgast hér í fullri lengd: Kæri Björgólfur

_MG_2597.jpg_MG_2584.jpg_MG_2634.jpg

7 lausnir á efnahagsvandanum - Lilja Mósesdóttir

Lilja Mósesdóttir var ein af frummælendum síðasta borgarafundar. Hún flutti frábært erindi sem hún endaði með því að nefna 7 lausnir á efnahagsvanda okkar sem sérfræðingar í fjármálakreppum mæla með:

  1. Vaxtalækkun til að gera heimilum og fyrirtækjum kleift að ráða við skuldsetninguna
  2. 60% skattur á útstreymi fjármagns yfir 10 milljónir til að styrkja gengi krónunnar
  3. Viðvarandi halli á ríkissjóði til að takast á við atvinnuleysið og aukið félagslegt misrétti
  4. Lánalenging fyrir heimilin til að koma í veg fyrir gjaldþrot og landflótta
  5. Hagstjórn sem miðar að því að tryggja efnahagslega velferðar í gegnum atvinnuskapandi aðgerðir
  6. Dreifðara eignarhald fyrirtækja til að tryggja langtíma stöðugleika og atvinnu
  7. Aukið eftirlit með bönkum og fyrirtækjum til að fyrirbyggja fáræði og aðra efnahagskrísu

    borgarafundur_8_nov_10.jpg_MG_2613.jpg_MG_2583.jpg

Hér er að finna ræðu Einars Más Guðmundssonar sem hann flutti á borgarafundinum í Iðnó mánudaginn 27. október.
Hér fyrir neðan er einnig myndskeið með broti úr ræðunni:

Opinn borgarafundur í Iðnó

Mánudaginn 27. október kl. 20:00 var haldinn opinn borgarafundur í Iðnó um stöðu þjóðarinnar.

Fjórir frummælendur hófu umræðuna: Einar Már Guðmundsson rithöfundur, Björg Eva Erlendsdóttir blaðamaður, Lilja Mósesdóttir hagfræðingur og Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur.

Þegar frummælendur höfðu lokið máli sínu var orðið gefið laust og hver sem vildi tjá sig fékk þrjár mínútur til að tjá sig úr sal eða spyrja spurninga.

Hér er að finna fundargerð fundarins.