Í IÐNÓ, mánudaginn 29. júní kl. 20-22.
Fundarefni:
IceSave - Getum við borgað?.
Frummælendur:
- Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur
- Einar Már Guðmundsson rithöfundur
- Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
Í pallborði verða (auk ofangreindra):
- Meðlimir úr InDefence hópnum
- Eygló Harðardóttir þingmaður
- Elvira Méndez dr. í Evrópurétti
Að vanda hefur öllum þingmönnum verið sérstaklega boðið.
Fundarform verður með sama sniði og áður, þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og fundargestir úr sal fá að tjá sig eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga.
Hver aðili hefur tvær mínútur til að tjá sig svo gott er að vera vel undirbúinn.
Í IÐNÓ, mánudaginn 29. júní kl. 20-22.
Fundarefni
IceSave (getum við borgað?)
Indefence hópurinn mætir og frummælandi frá þeim verður Helgi Áss Grétarsson sérfræðingur.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Indriði G. Þorláksson hafa fengið boð um að vera í pallborði.
Annar frummælandi verður auglýstur síðar.
Að vanda verðum öllum þingmönnum sérstaklega boðið.
Sýnum samstöðu og borgaralega virkni og fjölmennum á fundinn.
Undirbúningsnefnd
www.borgarafundur.org
Kæru félagar
Nú þegar kosningar eru um garð gengnar, hafa aðstandendur Opinna borgarafunda, ákveðið að hefja starf sitt að nýju. Verður fyrsti fundur eftir kosningnar haldinn í Borgartúni 3 mánudaginn 11. maí kl. 20:00.
Yfirskrift fundarins eru Skuldir heimilanna og aðgerðir.
Frummælendur verða Marínó G. Njálsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna sem mun tala um hinar ýmsu aðgerðir í þágu heimilana sem ríkistjórnin hefur boðað og Sveinn Aðalsteinsson sem mun fjalla um skuldir og stöðu þjóðarinnar og heimilanna.
Allir eru velkomnnir.
Nefndin
Í IÐNÓ, miðvikudaginn 11. mars kl 20-22.
Fundarefni
500 milljarðar til eigenda - glæpur eða vinagreiði
Frummælendur
Atli Gíslason - þingmaður
Bjarni Benediktsson - þingmaður
Björn Þorri Viktorsson - hæstaréttarlögmaður
Í pallborði verða Haraldur L. Haraldsson hagfræðingur og Jóhann G. Ásgrímsson viðskipafræðingur.
Auk þeirra hefur ráðherrum viðskipta- og dómsmála verið boðið í pallborð.
Öllum þingmönnum hefur einnig verið sérstaklega boðið.
Fyrirkomulag
Fundarform verður með sama sniði og áður, þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og fundargestir úr sal fá að tjá sig eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga.
Hver aðili hefur tvær mínútur til að tjá sig svo gott er að vera vel undirbúinn.
Spyrjum, hlustum og fræðumst.
Sýnum samstöðu og borgaralega virkni og fjölmennum á fundinn.
f.h. undirbúningsnefndar
Guðný Þorsteinsdóttir - s: 659 0313

Opinn borgarafundur #11
Fimmtudaginn 5. mars kl. 17:15-18:45 verður umræðufundur undir
leiðsögn Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings.
Inngangserindi: Hvað gerir fólk ánægt í lífinu?
Á síðasta fundi var rætt um:
1. Áhrif bankahruns líðan fólks, viðbrögð við því og hjálplegt hugarfar.
2. Einstaklingshyggju, sjálfselsku og eigingirni vs. Sjálf-samþykki og
það að standa með sjálfum sér og með öðrum.
3. Frjálshyggju og félagslega ábyrgð.
4. Hlutverk stéttarfélaga í mótmælum á tímum kreppu og atvinnuleysis.
Frítt er inn og allir velkomnir.
Fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17:15 - 19:45 verður annar fundur af þremur undir leiðsögn Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings. Fundirnir eru haldnir í Borgartúni3.
Í þessum fundum heldur Gunnar erindi og stýrir umræðum um hvernig við getum greint og nýtt styrkleika okkar og góð lífsgildi í gegnum kreppuástandið. Hugað er að góðum lífsgildum, mikilvægi hjálplegs hugarfars og þess að fólk tali saman, tjái sig, læri af öðrum og leiti úrræða.
Frítt er inn og allir velkomnir.
Sjá nánari upplýsingar.
Fimmtudaginn 19. febrúar kl. 17:15 - 18:45 verður haldinn fundur í Borgartúni 3 undir leiðsögn Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings.
Gunnar heldur erindi og stýrir umræðum um hvernig við getum greint og nýtt styrkleika okkar og góð lífsgildi í gegnum kreppuástandið. Hugað er að góðum lífsgildum, mikilvægi hjálplegs hugarfars og þess að fólk tali saman, tjái sig, læri af öðrum og leiti úrræða.
Frítt er inn og allir velkomnir.
Sjá nánari upplýsingar.
Kl 16:00 í dag laugardaginn 7. febrúar verðum við með opið hús í Borgartúni 3
Boðið verður upp á kaffi, súkkulaði og eitthvað gómsætt með því.
Mánudaginn 7. febrúar kl: 20:00-22:00 verður undirbúningsfundur fyrir næsta opna borgarafund.
Hvetjum alla til að mæta og taka þátt í undirbúningnum en stefnan er að bjóða nýju ríkisstjórninni í Háskólabíó.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Borgarafundur.org vill vekja athygli á borgarafund á Akureyri næsta sunnudag. Fundurinn er haldinn í samvinnu við undirbúningsnefnd borgarafundanna í Reykjavík.
Yfirskrift fundarins er: Landráð af „gáleysi”
Staðsetning: Ketilhúsinu
Tími: sunnudaginn 8. febrúar. kl 15:00
Frummælendur:
- Sigurjón Þórðarson, heilbrigðisfulltrúi á Sauðárkróki
- Margrét Heinreksdóttir, lögfræðingur
- Andrés Magnússon, læknir
- Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur
Í pallborði:
Lilja Skaftadóttir, fulltrúi Landráðshópsins, Atli Gíslason, lögfræðingur og þingmaður VG og feiri
Ölllum þingmönnum kjördæmisins hefur verið sent fundarboð.
Fundarstjóri: Edward Huijbens